Hæstiréttur hafnaði kröfu nokkurra landeigenda um að ógilda ákvörðun ráðherra frá 21. júní 2024 um heimild Landsnets til eignarnáms réttinda vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 í Sveitarfélaginu Vogum og einnig kröfu þeirra um að framkvæmdaleyfi sem bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga veitti Landsneti hinn 30. júní 2023 yrði fellt úr gildi. Málið á sér langa sögu sem nær allt til ársins 2009 og hafa lögmenn MAGNA óslitið síðan þá unnið að framgangi mála tengdum Suðurnesjalínu 2 fyrir hönd Landsnets. Hæstaréttardómar tengdir Suðurnesjalínu 2, bæði þeir sem féllu fyrir 10 árum og þeir sem kveðnir voru upp í gær, hafa fordæmisgildi við undirbúning framkvæmda. Samanburður á þeim sýnir skýrt að Landsnet hefur með vönduðum vinnubrögðum og góðum rökum sýnt fram á mikilvægi Suðurnesjalínu 2, sem er hluti af flutningskerfi raforku og einn veigamesti þáttur í innviðum okkar samfélags. Dómar Hæstaréttar sem féllu í gær eru fordæmisgefandi fyrir þær framkvæmdir sem unnið er að og áætlaðar eru á næstu árum, hvort sem litið er til uppbyggingu flutningskerfisins eða annarra mikilvægra innviða. Veitir þetta fordæmi von um að dómsmálum af því tagi sem vörðuðu Suðurnesjalínu 2 fækki og um leið að framkvæmdatími styttist. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenskt þjóðfélag að undirbúningstími mikilvægra framkvæmda sé hæfilegur og sé ekki talinn í áratugum. Sjá umfjöllun á mbl.is