MAGNA lögmenn voru ráðgjafar kaupenda í viðskiptunum

Samhentir Kassagerð hf., stærsta umbúðaþjónustufyrirtæki landsins, hefur náð samkomulagi um kaup á Plastco ehf. Samrunatilkynningu þess efnis hefur verið skilað inn til Samkeppniseftirlitsins.

„Kaupin á Plastco eru mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Samhentra og styrkja þau enn frekar stöðu félagsins á markaði og styðja við vaxtaráform félagsins á komandi árum,“ segir í tilkynningu Samhentra.

Eldjárn Capital og MAGNA lögmenn voru ráðgjafar kaupenda í viðskiptunum, en LOGOS lögmannsþjónusta annaðist ráðgjöf við seljendur.

Sjá umfjöllun í Viðskiptablaðinu.

Deildu okkur