Morgunverðarfundur Auðnast og MAGNA var haldinn á Nauthóli 6. mars sl. Á fundinum var rætt um mikilvægu málin og var yfirskrift fundarins: ,,Hvernig tryggjum við góð samskipti á vinnustað?“
Unnur Ásta Bergsteinsdóttir, lögmaður hjá MAGNA lögmönnum, var ein af fimm fyrirlesurum á fundinum, en hún fjallaði um EKKO og samskiptamál út frá lögfræðinni. Auk hennar fluttu sérfræðingar Auðnast í vinnuvernd mjög áhugaverð erindi og einnig voru innlegg frá stjórnendum Marel og Reykjavíkurborgar, en þau deildu mikilvægri reynslu sinni sem stjórnendur á sínum vinnustöðum, með fundargestum.
Fullt var út úr húsi á fundinum og er það til marks um að samskiptamál og vinnuvernd séu málefni sem stjórnendur láta sig sífellt meira varða.