Fagleg ábyrgð fasteignasala þar sem fjallað verður um störf og starfshætti fasteignasala við milligöngu um kaup og sölu fasteigna, sbr. lög nr. 70/2015. Sérstaklega verða skoðaðar starfsskyldur fasteignasala á grundvelli II. kafla laganna og þau úrræði sem unnt er að leita ef spurningar vakna um hvort brotið hafi verið gegn þeim faglegu skyldum sem á fasteignasölum hvíla. Litið verður til nýlegra fordæma á sviði stjórnsýsluréttar og nýlegra dóma á þessu sviði. Kennari er Sandra Mjöll Markúsdóttir lögmaður hjá MAGNA en hún er jafnframt starfsmaður eftirlitsnefndar fasteignasala.