MAGNA Lögmenn geta aðstoðað þig með mál sem snúa að faðerni
Barn á rétt á að þekkja foreldra sína
Rétturinn leiðir meðal annars af 1. gr. a. barnalaga nr. 76/2003
Hvernig eru börn feðruð?
Faðerni þegar móðir er í hjónabandi eða sambúð:
Sé móðir í hjónabandi með manni þegar hún fæðir barn þá telst eiginmaður hennar faðir barnsins, sbr. 2. gr. barnalaga, nr. 76/2003
Það sama gildir ef barnið er fætt svo skömmu eftir hjúskaparslit að það sé hugsanlega getið í hjónabandinu
Þetta á þó ekki við ef hjónin voru skilin að borð og sæng á getnaðartíma barnsins, né ef móðir hefur gifst eða skráð sambúð sína í þjóðskrá með öðrum manni fyrir fæðingu þess
Ef móðir er í skráðri sambúð við fæðingu barns og lýsir sambýlismanninn föður barnsins þá telst hann faðir þess
Faðerni þegar móðir er hvorki í sambúð né hjónabandi:
Sé móðir hvorki í hjónabandi né skráðri sambúð við fæðingu barns er unnt að feðra það með faðernisviðurkenningu
Ef óvissa er um faðerni getur þurft að höfða faðernismál fyrir dómi til að fá úr því skorið
Foreldrar barns sem getið er við tæknifrjóvgun
Sérreglur gilda um foreldra barns sem getið er við tæknifrjóvgun
Grunur um rangt faðerni
Eina leiðin til að breyta skráðu faðerni er að fá úrlausn dómstóla
Sönnun
Alla jafna er þá jafnframt gerð mannerfðafræðileg rannsókn sem sker úr um faðernið
Samkvæmt barnalögum skal maður talinn faðir barns ef niðurstöður mannerfðafræðilegra rannsókna benda eindregið til þess að hann sé faðir þess
Hver getur höfðað faðernismál?
Barn
Móðir
Maður sem telur sig föður barns enda hafi barn ekki verið getið með gjafasæði
Skráður faðir barns getur höfðað vefengingarmál telji hann barnið ranglega feðrað
Hverjum er stefnt?
Ef barn eða móðir höfða mál skal stefnt þeim manni eða mönnum sem taldir eru hafa haft samfarir við móður á getnaðartíma barns
Ef sá maður er látinn sem er talinn vera faðir barns er unnt að höfða mál á hendur þeim lögerfingja hans sem gengi barninu jafnhliða eða næst að erfðum
Ef maður sem telur sig föður barns höfðar mál skal móður þess stefnt, en sé hún látin, barninu sjálfu
Kostnaður við rekstur faðernismála
Ef barn höfðar faðernismál greiðist þóknun lögmanns sem dómari ákveður úr ríkissjóði. Sama gildir um annan málskostnað barnsins (stefnanda), s.s. öflun mannerfðafræðilegrar rannsóknar