Sáttamiðlun getur verið árangursrík og skjótvirk leið til að leysa úr ágreiningi án þess að fara með mál fyrir dómstóla eða hefja formleg deilumál. Í sáttamiðlun fá aðilar tækifæri til að ræða málin í öruggu, hlutlausu og faglegu umhverfi, með aðstoð sérhæfðs sáttamiðlara sem leiðir ferlið áfram.
Unnur Ásta Bergsteinsdóttir, lögmaður hjá MAGNA Lögmönnum, hefur menntað sig í sáttamiðlun og sinnir hún nú sáttamiðlun fyrir einstaklinga, fjölskyldur og vinnustaði. Nánar tiltekið hefur Unnur Ásta nýlega lokið námi sem kallast Accredited Mediator Training Programme hjá Mediation Foundation of Ireland, sem veitir réttindi sem Certified Mediator