Hópur fjárfesta kaupir Nicetravel. Engilbert Hafsteinsson leiðir hóp fjárfestanna og tekur við starfi framkvæmdastjóra félagsins. Stærstu hluthafar verða Engilbert og Andri Gunnarsson, sem jafnframt verður stjórnarformaður félagsins. Meðal annarra fjárfesta eru Gestur Breiðfjörð Gestsson, Davíð Másson, Skúli Mogensen, bræðurnir Sveinn og Henrik Biering ásamt bræðrunum Birgi og Bjarna Brynjólfssonum.
MAGNA annaðist lögfræðiráðgjöf fyrir seljendur. Sjá umfjöllun í Viðskiptablaðinu.