Samkeppnisréttur getur spilað stórt hlutverk í rekstri og viðskiptum fyrirtækja, s.s. vegna sameiningar fyrirtækja eða yfirtöku eins fyrirtækis á öðru. Hjá MAGNA lögmönnum starfa reyndir sérfræðingar með víðtæka þekkingu á sviði samkeppnisréttar sem veitt geta alhliða ráðgjöf um hvers konar samkeppnisréttarleg álitaefni, bæði í viðskiptum og við úrlausn ágreiningsmála gagnvart samkeppnisyfirvöldum og fyrir dómi.