Lögmenn MAGNA búa yfir reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði vinnuverndar
Atvinnurekendum ber skylda til að tryggja öruggt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk
Fjallað er um þessar skyldur í lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustað, nr. 46/1980
Félagslega vinnuumhverfið og EKKO mál
Hluti af skyldum atvinnurekenda er að tryggja gott félagslegt vinnuumhverfi
Í reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn EKKO á vinnustað, er fjallað um ýmsar skyldur sem hvíla á atvinnurekendum og starfsfólki sem er ætlað að tryggja öruggt félagslegt vinnuumhverfi
EKKO stendur fyrir:
Einelti
Kynbundna áreitni
Kynferðislega áreitni
Ofbeldi
Atvinnurekendur þurfa að tryggja að til staðar séu viðeigandi verkferlar á vinnustaðnum, s.s. viðbragðsáætlun við EKKO, byggð á áhættumati
Atvinnurekendur geta orðið skaðabótaskyldir vegna EKKO mála, s.s. á grundvelli vinnuveitendaábyrgðar eða vegna þess að viðbrögð stjórnenda við kvörtunum um EKKO á vinnustað hafa verið ófullnægjandi
Lögmenn MAGNA hafa aðstoðað fyrirtæki, stéttarfélög og einstaklinga við EKKO mál
Fræðsla og þekking er besta forvörnin
MAGNA lögmenn bjóða upp á fræðslu um EKKO frá lögfræðilegu sjónarhorni. Slík fræðsla gagnast t.d. stjórnendum, millistjórnendum og mannauðsfólki.